Fotbolti.net
22.11.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Bjarni Pálmason í Hamrana/Vini (Staðfest)

Bjarni í leik gegn Fram í Visa-bikarnum í sumar.

Bjarni í leik gegn Fram í Visa-bikarnum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Bjarni Pálmason hefur gengið til liðs við Hamrana/Vini en hann kemur til félagsins frá Hvöt.
Bjarni er uppalinn hjá KA en hann lék með Hömrunum í þriðju deildinni í fyrra og gekk síðan til liðs við Hvöt síðastliðinn vetur.

Þessi 24 ára miðju og sóknarmaður skoraði sex mörk fyrir Hvöt í annarri deildinni í sumar en hann kom við sögu í öllum leikjum liðsins.

Hamrarnir/Vinir unnu þriðju deildina í sumar og munu næsta sumar leika í annarri deildinni í fyrsta sinn.

Hamrarnir og Vinir sameinuðust síðastliðinn vetur og voru með heimavöll í Reykjavík í sumar en áður höfðu þetta verið tvö aðskilinn lið sem höfðu aðsetur á Akureyri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.