Fotbolti.net
22.12.04 - 07:37
Hafliði Breiðfjörð

Grönkjær til Atletico Madrid (Staðfest)

Grönkjær til Atletico Madrid (Staðfest)
Canon
Jesper Grönkjær gekk í gær frá félagaskiptum sínum frá Birmingham til Atletico Madrid á Spáni eftir að hafa undirgengist læknisskoðun. Hann skrifaði undir samning til ársins 2007 og verður löglegur í leikinn gegn Real Madrid 9. janúar.
,,Ég er mjög ánægður með að vera loksins kominn hingað til Spánar eftir allar vangavelturnar. Ég veit að Atletico Madrid er eitt af bestu spænsku félögunum. Þeim gengur vel og ég vil verða hluti af því."

Grönkjær gekk í raðir Birmingham frá Chelsea í júlí en hjá Chelsea skoraði hann 11 mörk í 119 leikjum á fjögurra ára tímabili. Honum gekk mjög illa hjá Birmingham og á endanum samþykkti Steve Bruce knattspyrnustjóri liðsins að leyfa honum að fara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.