22.12.08 - 14:28
Magnús Már Einarsson
Lassana Diarra til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur keypt miðjumanninn Lassana Diarra frá Portsmouth á 20 milljónir punda.
Þessi 23 ára gamli Frakki hefur staðist læknisskoðun og samþykkt fjögurra og hálfs árs samning við Real Madrid og verður hann löglegur með liðinu þegar að félagaskiptaglugginn opnast um mánaðarmótin.
,,Ég hef hæfileikana og ég tel að Real Madrid sé það sem mig vantar. Ég þarf að aðlagast spænska boltanum og vera fljótur að því,\" sagði Diarra í dag en hann var áður á mála hjá Chelsea og Arsenal.
,,Ég hef leikið með stórliðum og fengið góða reynslu með franska landsliðinu en ég vil bæta mig meira.\"
Diarra hefur verið líkt við landa sinn Claude Makelele sem lék með Real Madrid á sínum tíma.
,,Það er satt að það er ýmislegt líkt með okkur en Makelele er Makelele og ég er ég. Makelele hefur sinn eigin stíl og ég hef minn. Ég fer til Madrid til að vera Lassana Diarra og sýna hvað ég get gert.\"

Heimild: BBC