22.12.08 - 15:14
Magnús Már Einarsson
Haukur Ingi Guðnason í Keflavík (Staðfest)

Haukur Ingi skrifar undir í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Haukur Ingi skrifar undir í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Haukur Ingi Guðnason skrifaði í dag undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt Keflavík en hann kemur til liðsins frá Fylki.
Samningur Hauks Inga við Fylki rennur út um áramótin og því fer hann til Keflvíkinga án greiðslu.
Haukur Ingi, sem er þrítugur, lék síðast með Keflavík sumarið 2002 en í kjölfarið gekk hann til liðs við Fylki og hefur leikið með Árbæjarliðinu undanfarin sex ár.
Haukur Ingi skoraði á sínum tíma 20 mörk í 75 leikjum í efstu deild með Keflavik en alls hefur hann skorað 30 mörk í 138 leikjum í efstu deild á ferli sínum.
Síðastliðið sumar skoraði Haukur Ingi tvívegis í fimmtán leikjum með Fylkismönnum í Landsbankadeildinni en meiðsli hafa oft á tíðum sett strik í reikninginn hjá honum og til að mynda lék hann ekkert með Fylki sumarið 2004.
Við sama tækifæri og Haukur Ingi skrifaði undir í dag þá gerðu Magnús Þórir Matthíasson og Tómas Kjartansson þriggja ára samning við Keflavík.
Báðir þessir leikmenn eru átján ára gamlir og voru viðloðandi leikmannahópinn hjá Keflvíkingum síðastliðið sumar.
Ásdís Þorgilsdóttir skrifaði einnig á sama tíma undir samning við Keflavík en hún verður þrekþjálfari hjá meistaraflokki karla.