Fotbolti.net
22.12.08 - 19:06
Magnús Már Einarsson

Paul Stalteri til Borussia Monchengladbach (Staðfest)

Paul Stalteri til Borussia Monchengladbach (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paul Stalteri hefur gert tveggja og hálfs árs samning við þýska félagið Borussia Monchengladbach.
Þessi 31 árs gamli Kanadamaður losnaði undan samningi hjá Tottenham í gær og var í kjölfarið ekki lengi að finna sér nýtt félag.

Stalteri, sem er bakvörður, þekkir vel til í Þýskalandi því hann lék 151 leik með Werder Bremen áður en hann gekk í raðir Tottenham árið 2005.

Á fyrstu leiktíð sinni var Stalteri fastamaður en síðan fór að halla undan fæti og í fyrra fór hann til Fulham á láni.

Stalteri lék alls 56 leiki fyrir Tottenham og skoraði þrjú mörk á þeim tíma sem hann var hjá félaginu.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.