23.02.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ben Watson til WBA á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur fengið miðjumanninn Ben Watson á láni frá Wigan út þetta tímabil.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kemur til með að fylla skarðið sem Gonzalo Jara skilur eftir sér en hann fótbrotnaði á dögunum og verður ekki meira með á tímabilinu.
Wigan keypti Watson frá Crystal Palace á tvær milljónir punda í janúar árið 2009.
Hann hefur hins vegar einungis leikið þrettán leiki með Wigan og fyrr á þessari leiktíð var hann í láni hjá QPR í fjóra mánuði.

Heimild: BBC