23.03.09 - 15:18
Magnús Már Einarsson
Þórarinn Brynjar Kristjánsson í Grindavík (Staðfest)

Þórarinn verður í treyju númer níu hjá Grindavík.

Mynd: Grindavík

Þórarinn verður í treyju númer níu hjá Grindavík.

Mynd: Grindavík
Grindíkingar hafa fengið framherjann Þórarinn Brynjar Kristjánsson til liðs við sig frá Keflavík en hann skrifaði undir samning við félagið í hádeginu í dag og líst vel á sitt nýja félag.
,,Bara mjög vel, allt jákvætt og ég hlakka til að takast á við þetta. Ég hef spilað með nokkrum í liðinu áður, Scotty, Eystein og Óttar með Keflavík og Ray í yngri landsliðum. Svo var ég undir stjórn Jankó fyrir nokkrum árum þegar hann hann þjálfaði Keflavík,\" sagði Þórarinn við heimasíðu Grindvíkinga.
Þórarinn skaust ungur fram á sjónarsviðið þegar hann bjargaði Keflvíkingum frá falli gegn ÍBV aðeins fimmtán ára gamall.
Lengst af á ferli sínum hefur Þórarinn leikið með Keflavík en hann lék einnig Aberdeen í Skotlandi og Þrótti árið 2005.
Í fyrra skoraði þessi 28 ára gamli leikmaður þrjú mörk í sextán leikjum með Keflvíkingum en alls hefur hann skorað fimmtíu mörk í 165 leikjum í efstu deild á ferli sínum.

Heimild: Heimasíða Grindavíkur