Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
banner
   mán 23. mars 2026 15:47
Kári Snorrason
Ein allra óvæntasta stjarna síðasta tímabils
Sigfús Fannar er fæddur árið 2002.
Sigfús Fannar er fæddur árið 2002.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Páll Aðalsteinsson og Aron Elvar Finnsson.
Logi Páll Aðalsteinsson og Aron Elvar Finnsson.
Mynd: Kári Snorrason
Sigfús Fannar Gunnarsson var valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar á Fótbolta.net á síðasta tímabili þegar Þór vann deildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni.

Hann skoraði 15 mörk í 21 leik og varð markakóngur deildarinnar ásamt Oumar Diouck hjá Njarðvík. Markaskorun Sigfúsar kom eflaust mörgum á óvart enda hafði hann fyrir tímabilið aðeins skorað 12 deildarmörk í meistaraflokki.

Þór er spáð 10. sæti í spá Fótbolta.net og var frammistaða Sigfúsar á síðasta tímabili meðal þess sem rætt var um í hlaðvarpsþættinum Niðurtalningunni.

„Minn maður Fúsi hann steig upp. Besti leikmaður og markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili. Hann heldur betur steig upp og fór að sýna hvað hann er góður. Hann getur spilað hvar sem er, hann er það góður í fótbolta,“ sagði Logi Páll Aðalsteinsson í Niðurtalningunni þegar farið var yfir síðasta tímabil hjá Þórsurum.

„Það sá þetta enginn fyrir. Málið með Fúsa, þetta er svo fyndin týpa á velli. Hann ber það ekki með sér hvað hann er fljótur. Síðan fer hann maður á mann og það virkar eins og hann gerir það hægt en það ræður enginn við hann. Þetta er mjög skemmtileg týpa af leikmanni. Maður vissi alveg að Fúsi væri góður en maður átti ekki alveg von á þessari sprengju,“ sagði Aron Elvar Finnsson jafnframt í þættinum.

„Hann var alltaf bestur í öllum yngri flokkum og maður var alltaf að bíða eftir því að hann myndi springa út,“ sagði Logi en hann æfði með Sigfúsi í yngri flokkum Þórs.
Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda
Athugasemdir
banner