Sigfús Fannar Gunnarson var besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra þegar Þór vann deildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni í fyrsta sinn í rúman áratug. Sigfús skoraði 15 mörk í 21 leik líkt og Oumar Diouck í Njarðvík, þeir urðu því báðir markakóngar í deildinni á síðasta tímabili. Eftir tímabilið skrifaði Sigfús undir nýjan samning við uppeldisfélagið og er samningsbundinn út 2028.
Sigfús er sóknarmaður sem spilar oftast á kantinum. Fyrir tímabilið í fyrra hafði Sigfús skorað 12 deildarmörk í meistaraflokki. Hann er að komast af stað eftir að hafa glímt við meiðsli í vetur. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Sigfús er sóknarmaður sem spilar oftast á kantinum. Fyrir tímabilið í fyrra hafði Sigfús skorað 12 deildarmörk í meistaraflokki. Hann er að komast af stað eftir að hafa glímt við meiðsli í vetur. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Sigfús Fannar Gunnarsson
Gælunafn: Fúsi
Aldur: Fæddur 2002
Hjúskaparstaða: Kærasta
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Ég bara verð því miður að passa þessa. Man ekki
Uppáhalds drykkur: Nýmjólk
Uppáhalds matsölustaður: Ég er mikill Taco bell maður en hérna á Íslandi tek ég Krúa Siam
Uppáhalds tölvuleikur: GTA 5 hefur einhvern veginn allt
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Ja ég er í bitcoininu
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Boring svar en það er Breaking bad
Uppáhalds tónlistarmaður: Post malone
Uppáhalds hlaðvarp: Veislan eða Bióblaður, get ekki gert upp á milli þeirra
Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktok
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Tal.visir.is
Fyndnasti Íslendingurinn: Logi Páll á TikTok
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Tu matt saekja pontunina kl:20:03 i Undirhlíð 2 Kvedja Domino's Pizza.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: KF
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Hallgrímur Mar
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Vá þessi er rosalega erfið… meistaraflokk er það Dragan og Siggi Hö en verð að hafa Svein Leó líka sem tók mig í gegnum yngri flokkana
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Birkir Hauks kom fyrst upp
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Þetta er á milli Yaya Toure og Kaka
Sætasti sigurinn: Þór- Þróttur núna seinasta tímabil
Mestu vonbrigðin: Tap gegn félögum mínum í Dalvík í Mjólkurbikarnum
Uppáhalds lið í enska: Chelsea
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri til í að fá Jakob Franz aftur heim
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Einar Freyr hefur verið og er að læra af mér og er helvíti efnilegur
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Það getur verið erfitt að stilla sig með Vilhelm Ottó Biering hliðina á sér í klefanum
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Vigdís Edda frænka tekur það
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Ronaldo
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Bannað að fara jafntefli. Framlenging og vító.
Uppáhalds staður á Íslandi: Upp á Súlum á sumrin
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég fór markið í 2. flokki í 10 mín. Markmaðurinn meiddist og vorum ekki með varamarkmann.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei ekkert svoleiðis
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, ég fýla NFL og F1. Tek svo heimaleikina hjá Þór í handboltanum.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Fer alltaf í adidas F50
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Áhuginn var ekki mikill í dönskunni
Vandræðalegasta augnablik: Rautt spjald fyrir dýfu með Dragan á hliðarlínunni. Ég labbaði bara beint inn í klefa, þorði ekki að horfa í átt að honum.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Auðun Inga, Bjarma Fannar og Vilhelm Ottó og fara yfir Dalvíkina
Bestur/best í klefanum og af hverju: Ég gæti fylgst með og hlustað á Ágúst Hlyns allan daginn í klefanum
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég tæki Kristófer Kristjáns í Love Island. Sá myndi krydda hlutina almennilega þar
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég á eiginlega enga, en ég fór í bíó á allar myndir (nema barnamyndir) sem komu 2023-2025
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Birgir Hlynsson. Ég hélt að hann væri einhver svaka tappi en hann er mesti ljúflingur sem ég þekki
Hverju laugstu síðast: Að ég væri upptekinn og gæti ekki skutlað bróður mínum
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaupin hjá Sigga eru viðbjóður
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég mundi spyrja Todd Boehly af hverju hann ræður ekki einhvern alvöru þjálfara
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Mæta á alla leiki og búa til alvöru stemningu á leikdögum. Þið hafið miklu meiri áhrif á leikinn en þið haldið.
Athugasemdir


