Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
   mán 23. mars 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hlýtur að þýða að spekingarnir hafa einhverja trú á okkur"
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar eru komnir í Bestu deildina.
Þórsarar eru komnir í Bestu deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Gleði eftir að liðið komst upp.
Gleði eftir að liðið komst upp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmenn Þórs í leiknum þegar liðið vann sér inn sæti í efstu deild.
Stuðningsmenn Þórs í leiknum þegar liðið vann sér inn sæti í efstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Siggi í viðtali hjá Nablanum.
Siggi í viðtali hjá Nablanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Okkur líður bara vel með þessa spá," segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, um spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina. Þórsurum er spáð tíunda sæti deildarinnar.

„Nýliðum er yfirleitt spáð beint niður svo að þetta hlýtur að þýða það að spekingarnir hafa einhverja trú á okkur."

Fimmtán af 18 uppaldir
Undirbúningstímabilið hefur gengið nokkuð vel hjá Þórsurum en liðið komst til að mynda í undanúrslit Lengjubikarsins.

„Veturinn hefur gengið fínt. Við vorum með væntingar um að æfa og spila meira á nýja vellinum okkar fyrir utan. Það hefur því miður alls ekki gengið eftir sökum seinagangs verktaka og veðráttu og því hefur Boginn góði verið okkar afdrep nánast í allan vetur," segir Siggi.

„Við höfum verið að byggja ofan á það sem okkur fannst ganga vel á síðasta undirbúningstímabili, svipað prógram nema auðvitað að Eiður Ben var fenginn inn í teymið í haust og hefur komið með mjög ferska vinda inn í liðið og klúbbinn sem heild."

„Leikir vetrarins hafa verið mjög misjafnir eins og venjulega en heilt yfir held ég að við getum bara vel við unað," segir þjálfari Þórsara.

Þórsarar hafa styrkt sig nokkuð vel í vetur og hafa til að mynda fengið nokkra heimamenn til baka. Þórsarar eru ekki hættir á markaðnum.

„Leikmannahópurinn finnst mér líta mjög vel út. Við höfum haldið okkur við þá stefnu áfram að byggja liðið upp á uppöldum Þórsurum og sótt gamla góða Þórsara aftur heim. Í undanúrslitaleiknum gegn Fylki á dögunum voru til að mynda 15 uppaldir leikmenn í hópnum af 18," segir Siggi.

„Við erum staðráðnir í því að sækja allavega einn leikmann inn í hópinn fyrir mót, mögulega tvo."

Liðið komið þar sem okkur finnst það eiga heima
Þórsarar eru að koma upp sem nýliðar og markmiðið er að gera sig gildandi á meðal þeirra bestu.

„Það gera sér allir grein fyrir því að Besta deildin er allt önnur skepna heldur en Lengjudeildin," segir Siggi. „Tilfinningin er sú að allir í kringum liðið séu staðráðnir í því að halda áfram að byggja ofaná það sem við höfum verið að vinna að síðustu tvö ár. Markmið þessarar stjórnar sem er núna var að alltaf að gera Þórsliðið að efstu deildar liði aftur og það að vera komnir þangað þýðir ekki að markmiðinu sé náð. Liðið þarf að stækka enn meira og gera sig gildandi að alvöru á meðal þeirra bestu og það kostar alvöru vinnu hjá öllum í kringum liðið. Tilfinningin er ennþá sú að allir séu að vinna í takt og tilbúnir að taka enn fleiri skref fram á við í átt að því markmiði."

„Við horfum bara á tímabilið í fyrra sem risa afrek. Deildin var sterk, við höfðum endað í 10. sæti árið á undan svo að utan frá leit það kannski ekki út fyrir að vera eðlileg bæting að vinna svo deildina. En hópurinn og flestir í kringum liðið voru sammála því að 10. sætið gaf ekki alveg rétta mynd af því hvaða hlutir væri í gangi í félaginu og því væri ekkert annað í stöðunni en að bæta enn meira í og stefna aftur á það að koma liðinu upp og áfram á sömu gildum og stefnu sem hafði verið keyrt á árið á undan. Við settum saman plan sem við fylgdum mjög vel eftir, innan sem utan vallar, og það plan hélt svona líka vel."

Markmiðið er að koma skemmtilega á óvart í sumar.

„Markmiðið er að sjálfsögðu að halda liðinu uppi. Markmiðið mitt var að á nákvæmlega þessum tímapunkti myndi ég horfa á liðið mitt og hugsa að við værum með nægilega gott lið til þess að gera mjög góða hluti í deildinni en ekki að vera að hugsa um einhvern falldraug allt mótið. Það finnst mér hafa tekist vel og ég er alveg óhræddur við að segja það að ef allt gengur upp höfum við algjörlega liðið, þjálfarateymið og umgjörðina til þess að koma skemmtilega á óvart í deildinni í sumar," segir Siggi en einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Ég vil eiginlega byrja á því að þakka stuðningsfólki okkar fyrir ógleymanlega stund í Laugardalnum 13. september síðastliðinn og svo aftur um kvöldið sama dag í Hamri. Það er minning sem ég vona að fár séu búnir að gleyma og minning sem mun gera það að verkum að fólkið okkar mun flykkjast á bakvið okkur í sumar og troðfylla stúkuna við nýja völlinn okkar á öllum heimaleikjum og meira til. Liðið er komið þar sem okkur finnst það eiga heima og þá er eins gott að við Þórsarar njótum þess nú þegar á hólminn er komið."
Athugasemdir
banner
banner