Fotbolti.net
23.04.09 - 08:02
Hafliði Breiðfjörð

Roy Keane tekur við Ipswich (Staðfest)

Roy Keane er tekinn við Ipswich Town.

Roy Keane er tekinn við Ipswich Town.

Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich Town staðfesti snemma í morgun að Roy Keane hafi verið ráðinn sem nýr knattspyrnustjóri liðsins. Hann tekur við starfinu af Jim Magilton sem var rekinn í gær.
Roy Keane gerir tveggja ára samning við Ipswichy en hann hafði hætt hjá Sunderland í desember eftir tvö ár við stjórnvölinn.

,,Ég er hæstánægður með að Roy hefur samþykkt að koma til okkar og við erum alveg sammála með metnað okkar fyrir Ipswich Town,\" sagði Marcus Evans eigandi Ipswich við vef félagsins.

,,Hann hefur mikla reynslu í leiknum og er mikill sigurvegari sem lætur lið sitt spila skemmtilegan fótbolta og það er eitthvað sem stuðningsmenn Ipswich Town gera búist við.\"

,,Ég tel hann rétta manninn til að koma þessu félagi þangað sem við viljum vera, í úrvalsdeildina.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.