23.04.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Bjartþórsson í Leikni F (Staðfest) - Sjáðu markið

Hilmar í leik með Breiðablik.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Hilmar í leik með Breiðablik.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Hilmar Freyr Bjartþórsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Leikni Fáskrúðsfirði eftir að hafa verið hjá Fjarðabyggð og síðan Breiðablik.
Hilmar sem er tvítugur fór til Breiðabliks frá Fjarðabyggð haustið 2010. Hann hefur spilað meistaraflokksleiki frá árinu 2006 er hann var hjá Leikni Fáskrúðsfirði. Þá kom hann inná í leik gegn Neista þremur dögum eftir 14 ára afmælisdaginn sinn.
Hann spilaði fjóra leiki með Fjarðabyggð í 1. deildinni sumarið 2009 en annars með Leikni níu leiki það sumar.
Tímabilið leiktíð spilaði hann svo 23 leiki með Fjarðabyggð í 1. deildinni og VISA-bikarnum og skoraði þrjú mörk.
Hilmar byrjaði endurkomuna til Leiknis glæsilega þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu gegn KF í Lengjubikarnum. Markið er einkar glæsilegt og má sjá hér að neðan.