Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   þri 23. apríl 2024 21:17
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Leicester með annan fótinn upp í ensku úrvalsdeildina
Issahaku Fatawu skoraði þrennu
Issahaku Fatawu skoraði þrennu
Mynd: Getty Images
Leicester City 5 - 0 Southampton
1-0 Issahaku Fatawu ('25 )
2-0 Wilfred Ndidi ('62 )
3-0 Issahaku Fatawu ('75 )
4-0 Jamie Vardy ('79 )
5-0 Issahaku Fatawu ('81 )

Leicester City er komið með annan fótinn í ensku úrvalsdeildina eftir að liðið kjöldró Southampton, 5-0, á King Power-leikvanginum í Leicester í kvöld.

Hinn 20 ára gamli Issahaku Fatawu gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir heimamenn.

Fatawu skoraði fyrsta markið á 25. mínútu eftir að Kiernan Dewsbury-Hall þræddi hann í gegn áður en Wilfred Ndidi tvöfaldaði forystuna þegar hálftími var eftir.

Hausinn á Southampton-mönnum hrundi í grasið eftir annað markið og tókst Leicester að skora þrjú mörk á sex mínútum.

Fatawu skoraði annað mark sitt á 75. mínútu áður en Jamie Vardy kom Leicester í 4-0 fjórum mínútum síðar. Þrenna Fatawu var fullkomnuð á 81. mínútu, hans fyrsta fyrir félagið.

Leicester með 94 stig á toppnum, fjórum stigum meira en Leeds sem er í öðru sæti. Ipswich er í 3. sæti með 89 stig en á þó leik til góða. Southampton á enn tölfræðilegan möguleika á að komast beint upp, en umspil er líklegasta niðurstaðan.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 46 31 4 11 89 41 +48 97
1 Blackburn 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Ipswich Town 46 28 12 6 92 57 +35 96
2 Bristol City 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Burnley 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Southampton 46 26 9 11 87 63 +24 87
4 Cardiff City 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Coventry 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Derby County 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Hull City 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Leeds 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Luton 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Middlesbrough 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Millwall 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Norwich 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Oxford United 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Plymouth 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Portsmouth 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Preston NE 0 0 0 0 0 0 0 0
17 QPR 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Sheffield Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Sheff Wed 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Stoke City 0 0 0 0 0 0 0 0
21 Sunderland 0 0 0 0 0 0 0 0
22 Birmingham 46 13 11 22 50 65 -15 50
22 Swansea 0 0 0 0 0 0 0 0
23 Watford 0 0 0 0 0 0 0 0
23 Huddersfield 46 9 18 19 48 77 -29 45
24 Rotherham 46 5 12 29 37 89 -52 27
24 West Brom 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner