Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 09:05
Brynjar Ingi Erluson
Dalvík/Reynir sækir þrjá leikmenn (Staðfest)
Einar Ari Ármannsson og Hörður Snævar Jónsson, þjálfari Dalvíkur/Reynis
Einar Ari Ármannsson og Hörður Snævar Jónsson, þjálfari Dalvíkur/Reynis
Mynd: Dalvík/Reynir
Almar Örn Róbertsson, Einar Ari Ármannsson og Gabriel Lukas Freitas Meira hafa samið um að leika með Dalvík/Reyni til næstu tveggja ára.

Almar er fæddur árið 2006 og kemur frá KA, en hann væng- og sóknarmaður með sterka Dalvíkurtengingu.

Hann spilaði sinn fyrsta keppnisleik með liðinu í síðasta mánuði í 3-1 tapinu gegn Magna í Mjólkurbikarnum og spilaði þá í Lengjubikarnum.

Einar Ari er markvörður sem er fæddur árið 2003. Hann er uppalinn í KA en hefur spilað með Magna síðustu ár.

Gabriel Meira er fæddur 2006 og er sömuleiðis uppalinn í KA. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur komið sterkur inn hjá Dalvík/Reyni í vetur.

Dalvík/Reynir hafnaði í 5. sæti 2. deildar á síðasta ári með 34 stig.


Slapp
banner
banner
banner