Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Sessegnon verður áfram hjá Fulham (Staðfest)
Sessegnon verður áfram hjá Fulham
Sessegnon verður áfram hjá Fulham
Mynd: EPA
Englendingurinn Ryan Sessegnon verður áfram hjá Fulham á næsta tímabili, en félagið virkjaði ákvæði í samningi leikmannsins um að framlengja hann um eitt ár.

Sessegnon er 25 ára gamall og kemur úr akademíu Fulham. Hann var álitinn einn efnilegasti leikmaður sinnar kynslóðar áður en hann gekk í raðir Tottenham árið 2019.

Þar náði hann aldrei að lifa upp til þeirra væntinga sem gerðar voru til hans og fór það svo að hann yfirgaf félagið á frjálsri sölu árið 2024 og gekk aftur í uppeldisfélagið.

Á þessu tímabili hefur hann komið að fimm mörkum í 26 úrvalsdeildarleikjum, en félagið er afar ánægt með frammistöðu hans og hefur nú virkjað ákvæði um að framlengja samning hans út næsta tímabil.

„Ég er auðvitað í skýjunum enda er þetta félagið sem ég hef alltaf viljað spila fyrir. Mér líður vel hjá félaginu og er ánægður með dvöl mína, bæði á síðasta tímabili og þessu, og núna vil ég að við klárum tímabilið af krafti,“ sagði Sessegnon við FFCTV.

Fulham er í 12. sæti deildarinnar með 45 stig, aðeins þremur stigum frá Evrópusæti.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner