Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. júlí 2019 09:52
Elvar Geir Magnússon
Man Utd fellur niður listann yfir verðmætustu félögin
Frá Old Trafford, heimavelli Manchester United.
Frá Old Trafford, heimavelli Manchester United.
Mynd: Getty Images
Manchester United fellur niður um fjögur sæti á lista Forbes tímaritsins yfir verðmætustu íþróttafélög heims. United er komið niður í sjötta sæti.

Ameríska NFL-liðið Dallas Cowboys trónir á toppi listans og hafnarboltaliðið New York Yankees er í öðru sæti.

Af knattspyrnufélögum er Real Madrid efst, situr í þriðja sæti og er einu sæti ofar en erkifjendur sínir í Barcelona.

Forbes' verðmætustu félögin:
1. Dallas Cowboys (NFL) $5bn (£4bn)
2. New York Yankees (MLB) $4.6bn
3. Real Madrid (fótbolti) $4.24bn
4. Barcelona (fótbolti) $4.02bn
5. New York Knicks (NBA) $4bn
6. Manchester United (fótbolti) $3.81bn
7. New England Patriots (NFL) $3.8bn
8. Los Angeles Lakers (NBA) $3.7bn
9. Golden State Warriors (NBA) $3.5bn
10. New York Giants (NFL) $3.3bn
10. Los Angeles Dodgers (MLB) $3.3bn

Önnur valin félög:
25. Manchester City (fótbolti) $2.69bn
32. Chelsea (fótbolti) $2.58bn
42. Arsenal (fótbolti) $2.27bn
45. Liverpool (fótbolti) $2.18bn
Athugasemdir
banner