Brotist var inn til Fabinho, miðjumanns Liverpool, í gær og ýmsu stolið frá honum.
Þjófarnir tóku skartgripi af heimili Fabinho sem og Audi bifreið Brasilíumannsins. Bifreiðin er komin í leitirnar en hún fannst í Wigan í dag.
Innbrotið átti sér stað einhverntímann milli klukkan 15:00 í gær og 4 í nótt.

Fabinho spilaði með Liverpool í 5-3 sigri gegn Chelsea í gær en eftir leikinn fékk liðið afhentan bikarinn fyrir sigur í ensku úrvalsdeildinni.
Fabinho áttaði sig á innbrotinu þegar hann kom heim eftir fagnaðarlætin með liðsfélögum sínum.
Athugasemdir