23.08.26 - 19:20
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Haukar í Lengjudeildina

Haukar eru komnir upp í Lengjudeildina

Mynd: Sigurður Elefsen

Viðar Örn er kominn með 21 mark

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Haukar eru komnir upp í Lengjudeildina

Mynd: Sigurður Elefsen
Haukar tryggðu sér í dag sæti í Lengjudeild karla með 5-2 sigri á Dalvík/Reyni í 2. deildinni. Sigurður Hrannar Þorsteinsson fór á kostum og skoraði þrennu í þessum mikilvæga leik.
Hafnfirðingar vissu fyrir leik að sigur myndi tryggja þeim sæti í Lengjudeildinni.
Sigurður Hrannar braut ísinn á 36. mínútu eftir sendingu frá Pablo Punyed. Fyrsta snertingin var ekki sú besta en Sigurður gafst ekki upp, elti boltann og kom honum í netið.
Hann bætti við öðru marki þegar tæpur hálftími var eftir en Hjörtur Freyr Ævarsson minnkaði muninn fyrir Dalvík/Reyni á 73. mínútu.
Haukar létu markið ekki slá sig út af laginu. Jón Gísli Stefánsson kom liðinu aftur í tveggja marka forystu áður en Sigurður fullkomnaði þrennuna aðeins tveimur mínútum síðar.
Rúnar Helgi Björnsson minnkaði muninn fyrir Dalvíkinga en Ólafur Darri Sigurjónsson átti lokaorðið í uppbótartíma og gulltryggði 5-2 sigur Hauka og sætið í Lengjudeildinni.
Haukar snúa því aftur í Lengjudeildina eftir sjö ára dvöl í 2. deild. Liðið er á toppnum með 44 stig, átta stigum meira en Selfoss sem er í öðru sæti.
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvennu fyrir Selfoss sem vann Þrótt Vogum, 3-1. Viðar er markahæstur deildarinnar með 21 mark og Selfyssingar færast nær Lengjudeildinni með hverjum leiknum.
Kári vann mikilvægan 1-0 sigur á Fjölni. Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu.
Kári berst við Selfoss um annað sætið og er nú í 3. sæti með 33 stig.
Magni vann Víking Ólafsvík, 3-1, og KFA valtaði yfir Hvíta riddarann, 6-0. Patrekur Aron Grétarsson skoraði tvennu fyrir KFA sem er í 5. sæti með 26 stig.
Haukar 5 - 2 Dalvík/Reynir
1-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('36 )
2-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('65 )
2-1 Hjörtur Freyr Ævarsson ('73 )
3-1 Jón Gísli Stefánsson ('74 )
4-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('76 )
4-2 Rúnar Helgi Björnsson ('88 )
5-2 Ólafur Darri Sigurjónsson ('92 )
Lestu um leikinn
Magni 3 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Viðar Már Hilmarsson ('7 )
1-1 Guðmundur Magnússon ('19 )
2-1 Guðni Sigþórsson ('74 )
3-1 Gunnar Darri Bergvinsson ('78 )
Þróttur V. 1 - 3 Selfoss
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('19, víti )
1-1 Almar Máni Þórisson ('28 )
1-1 Elías Karl Heiðarsson ('54 )
1-2 Viðar Örn Kjartansson ('81 )
KFA 6 - 0 Hvíti riddarinn
1-0 Nenni Þór Guðmundsson ('2 )
2-0 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('15 )
3-0 Patrekur Aron Grétarsson ('25 )
4-0 Ísak Eldur Ófeigsson ('47 )
5-0 Patrekur Aron Grétarsson ('56 )
6-0 Þór Sigurjónsson ('82 )
Kári 1 - 0 Fjölnir
1-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('18 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 19 | +25 | 44 |
| 2 | Selfoss | 19 | +11 | 36 |
| 3 | Kári | 19 | +19 | 33 |
| 4 | Víkingur Ó. | 19 | -6 | 28 |
| 5 | KFA | 19 | +10 | 26 |
| 6 | Fjölnir | 19 | +2 | 25 |
| 7 | Magni | 19 | -10 | 25 |
| 8 | Kormákur/Hvöt | 19 | +5 | 24 |
| 9 | Dalvík/Reynir | 19 | -6 | 22 |
| 10 | Þróttur V. | 19 | -8 | 19 |
| 11 | KFG | 19 | -20 | 19 |
| 12 | Hvíti riddarinn | 19 | -22 | 16 |