23.08.26 - 19:39
Brynjar Ingi Erluson
Salah opnaði markareikninginn með tvennu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mohamed Salah, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði sín fyrstu mörk með tyrkneska liðinu Trabzonspor í kvöld.
Salah yfirgaf Liverpool í sumar eftir níu farsæl ár á Anfield en það kom mörgum á óvart að hann skyldi semja við Trabzonspor.
Fjölmörg félög í fimm stærstu deildum Evrópu sýndu honum áhuga. Salah fór þó í viðræður við Besiktas og síðar Trabzonspor eftir að fyrrnefnda félagið dró sig frá samningaborðinu vegna hárra krafna umboðsmanns hans.
Trabzonspor gekk að kröfum Salah og umboðsmannsins og samdi Egyptinn því við félagið.
Hann var í byrjunarliðinu í tyrknesku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í dag og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri Trabzonspor á Basaksehir.
Salah er því kominn í gang og mörkin tryggðu Trabzonspor fyrsta sigur tímabilsins. Liðið er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina.

GOOAAL MO SALAH EQUALISES !!!!!
— ????ahman???? (@Ra__mmi) August 23, 2026
LIV -1-1-NEW pic.twitter.com/koLs3YozOG
MO SALAH AGAIINNN !!!! HE IS ON FIREEEE!!???????? pic.twitter.com/wFjPLq2vB4