Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 23. september 2019 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Balotelli um að mæta Ronaldo: Mér er eiginlega alveg sama
Mario Balotelli er ekkert spenntur fyrir því að spila við Cristiano Ronaldo
Mario Balotelli er ekkert spenntur fyrir því að spila við Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
„Mér er eiginlega alveg sama," sagði Mario Balotelli, framherji Brescia á Ítalíu, er hann svaraði spurningu hvort hann væri spenntur fyrir því að mæta portúgalska leikmanninum Cristiano Ronaldo.

Balotelli fær líklega að spila sinn fyrsta leik fyrir Brescia gegn Juventus í Seríu A á morgun en hann var í leikbanni fyrstu fjóra leiki tímabilsins.

Hann kom til Brescia á frjálsri sölu í ágúst eftir að hafa átt fínt tímabil með Marseille þar á undan.

Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður heims, verður í eldlínunni gegn Brescia en Balotelli er eiginlega alveg sama.

„Hann er mikill meistari og bestur í heimi ásamt Lionel Messi. Það er gaman að spila gegn honum en ég verð ekkert spenntur fyrir því. Ég mun reyna að skora mörk eins og í öllum öðrum leikjum sem ég spila," sagði Balotelli.
Athugasemdir
banner
banner