Fotbolti.net
23.10.08 - 09:19
Magnús Már Einarsson

Hlynur Eiríksson tekur við Magna Grenivík (Staðfest)

Hlynur Eiríksson tekur við Magna Grenivík (Staðfest)
Canon

Mynd: Stefán Pálmason

Hlynur Eiríksson hefur verið ráðinn þjálfari Magna frá Grenivík en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gærkvöldi.
Atli Már Rúnarsson hefur þjálfað Magna undanfarin ár en hann hætti eftir tímabilið og fór aftur í Þór.

Hlynur er fyrrum leikmaður Þórs en hann hefur þjálfað annan flokk félagsins undanfarin ár.

Magnamenn hafa undanfarin tvö ár leikið í annarri deildinni en í sumar kom liðið skemmtilega á óvart og endaði í fimmta sæti deildarinnar eftir að hafa verið í níunda sæti í fyrra.

Myndin hér til hliðar er frá undirskrift samninga í gær en með Hlyni á myndinni er Þorsteinn Þormóðsson nýr formaður Magna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.