Fotbolti.net
23.10.08 - 17:12
Hafliði Breiðfjörð

Reynir Leósson í Val (Staðfest)

Reynir Leósson í Valsbúningnum.

Reynir Leósson í Valsbúningnum.

Canon

Mynd: Valur

Miðvörðurinn Reynir Leósson er genginn í raðir Vals frá Fram en þetta staðfesti Ótthar Edvardsson yfirmaður afrekssviðs Vals í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem skiptir um lið hér á landi eftir að tímabilinu lauk en kreppuástandið í landinu hefur haft þau áhrif að lítið hefur verið að gerast á markaðnum.
Reyni var samningsbundinn Fram út næsta ár en félögin hafa nú komist að samkomulagi um að hann gangi í raðir Vals og gerir þar þriggja ára samning.

Reynir Leósson er 29 ára gamall og uppalinn á Skaganum þar sem hann lék allt til ársins 2005 er hann gekk í raðir Trelleborg í Svíþjóð.

Hann kom svo aftur hingað til lands fyrir tímabilið 2006 er Ólafur Þórðarson þáverandi þjálfari Fram fékk hann til félagsins. Hann hefur leikið síðustu tvær leiktíðir með Fram við góðan orðstýr.

Hann lék 20 leiki í Landsbankadeildiinni í sumar og einn í VISA-bikarnum en í heildina spilaði hann 37 leiki í deild og bikar fyrir Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.