23.12.08 - 14:04
Hafliði Breiðfjörð
Simon Grayson tekur við Leeds United (Staðfest)

Simon Grayson kveður nú Blackpool til að taka við Leeds.

Mynd: Getty Images

Leeds United gekk í morgun frá ráðningu á Simon Grayson sem nýjum knattspyrnustjóra liðsins en hann tekur við starfinu af Gary McAllister sem var rekinn á sunnudag eftir fimm tapleiki í röð.
Grayson sem er 39 ára gamall hættir sem knattspyrnustjóri Blackpool til að taka við Leeds United. Blackpool hafði áður hafnað Leeds um leyfi til að ræða við hann og á vefsíðu félagsins segir í dag að verið sé að skoða að hefja málaferli gegn Grayson og Leeds.
,,Blackpool getur staðfest að Simon Grayson lagði fram uppsögn sína á þriðjudagsmorgun,\" sagði í yfirlýsingu Blackpool.
Grayson hefur taugar til Leeds enda hóf hann sinn feril þar sem leikmaður ungur að árum en hann lék tvo leiki með aðalliðinu áður en hann fór til Leicester árið 1992 og Aston Villa fimm árum síðar.
Sem knattspyrnustjóri kom hann Blackpool í Championship deildina eftir tvö ár við stjórnvölinn. Hann verður níundi stjóri Leeds á tíu árum.

Heimild: BBC