23.12.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Roger Lemerre tekur við Ankaragucu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roger Lemerre, fyrrum landsliðsþjálfari Frakka, hefur tekið við tyrkneska félaginu Ankaragucu.
Lemerre, sem er 68 ára, tekur við af Himet Karaman sem var látinn fara fyrir mánuði.
Hinn norski Trond Sollied hafnaði tilboði um að taka við liðinu á dögunum og í kjölfarið var leitað til Lemerre.
Lemerre hefur verið í fríi frá fótbolta síðan að hann hætti með landslið Marokkó síðastliðið sumar.
Hann á mikið verk fyrir höndum því að Ankaragucu er einungis með 17 stig eftir jafnmargar umferðir í Tyrklandi og situr í 15.sæti deildarinnar.

Heimild: Goal