Fotbolti.net
23.12.09 - 07:46
Hafliði Breiðfjörð

Arna Benný og Gígja Harðardóttir til Þór/KA (Staðfest)

Stúlkurnar handsala samninginn við Þór/KA.

Stúlkurnar handsala samninginn við Þór/KA.

Canon

Mynd: Vefur Þórs

Kvennaboltinn
Systurnar Arna Benný og Gígja Harðardóttir gengu í gær í raðir kvennaliðs Þór/KA en báðar koma þær frá Völsungi þar sem þær eru uppaldar.
Arna Harðardóttir er miðvörður en missti þó af síðasta tímabili vegna meiðsla. Aftur á móti lék Gíga Valgerður Harðardóttir sem er bakvörður eða kantmaður lék 12 leiki með Völsungi og skoraði 5 mörk í þeim leikjum.

Arna Harðardóttir kvaðst í stuttu spjalli við heimasíðuna Þórs að það hafi verið töluverður undanfari áður en hún ákvað að skrifa undir samning við Þór/KA ,, Fyrir tveimur árum töluðu forráðamenn Þór/KA fyrst um að fá okkur yfir en við gerðum svo sem ekkert í því þá. Síðan varð ég fyrir því óláni að meiðast, krossbandaslit og missti af öllu síðasta tímabili. Er núna að jafna mig á þessum meiðslum. Sjálf langaði mig að taka aðeins á þvi og komast í gott lið og reyna að bæta mig sem leikmann.\"

Rétt eins og hjá Örnu var töluverður undanfari áður en Gíga Valgerður skrifaði undir samning við Þór/KA spennt fyrir því að fá að spila með Þór/KA ,,Þór/KA byrjuðu að tala við mig í alvöru í fyrra og síðan aftur í glugganum í sumar en þá ákvað ég að vera aðeins lengur hjá Völsungi. Eftir þetta hef ég mætt á nokkrar æfingar hérna og leist bara mjög vel á klúbbinn og ákvað því að grípa tækifærið og skrifa undir samning við Þór/KA,\" sagði hún á vef félagsins þar sem frekar er rætt við þær systur.

Heimild: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.