Fotbolti.net
23.12.09 - 15:36
Magnús Már Einarsson

Elmar Dan Sigþórsson til Førde (Staðfest)

Elmar Dan Sigþórsson til Førde (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Elmar Dan Sigþórsson hefur gengið til liðs við Førde sem leikur í norsku 2.deildinni.
Á þessu ári lék Elmar Dan með Tornado Måløy í norsku 3.deildinni en þar sló hann í gegn í stöðu miðvarðar og var besti leikmaður liðsins.

Í kjölfarið sýndi Førde honum áhuga og þá fór Elmar einnig til reynslu hjá Hödd sem leikur líka í norsku 2.deildinni.

Tornado Måløy reyndi að halda Elmari en eftir að 14 daga samningaviðræður við Førde ákvað félagið að leyfa leikmanninum að fara þangað.

Elmar Dan lék með KA og Fjarðabyggð á Íslandi áður en hann fluttist til Noregs síðastliðinn vetur.

Á meðal leikmanna Førde er framherjinn Steinar Tenden sem var samherji Elmars hjá KA sumarið 2003.

Heimild: Firda.no

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.