Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 24. janúar 2021 08:30
Victor Pálsson
Koeman biður um leikmenn
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Barcelona, segir að hann þurfi á leikmönnum að halda í janúar og helst strax.

Barcelona hefur ekki gengið vel undir stjórn Koeman í vetur og hefur hann sjálfur verið orðaður við sparkið.

Eins og staðan er situr Barcelona í fjórða sæti deildarinnar og er tíu stigum á eftir toppliði Atletico Madrid.

Hollendingurinn vonast til að fá fjármagn á næstu vikum en veit að það er ekki gefið.

„Staðan mín er þekkt: við þurfum á leikmönnum að halda en þar spila fjármál félagsins inn í," sagði Koeman.

„Við erum öll að hugsa það sama. Ef enginn kemur til okkar þá sætti ég mig við það og við höldum áfram. Ef við viljum meira þá þurfum við leikmenn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner