24.02.10 - 10:22
Magnús Már Einarsson
Helgi Pétur Magnússon í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Þróttar

Mynd: Heimasíða Þróttar
Helgi Pétur Magnússon hefur gengið til liðs við Þrótt en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Þessi 26 ára gamli varnar og miðjumaður hefur leikið með ÍA frá því árið 2002 en hann hóf meistaraflokksferil sinn með Skallagrími.
Í síðasta mánuði tók Helgi Pétur ákvörðun um að yfirgefa ÍA en hann hefur nýlokið lögfræðiprófi og hafið störf á lögfræðistofu í Reykjavík.
Síðastliðið sumar skoraði hann tvö mörk í 21 leik með ÍA í fyrstu deildinni.
Þróttarar hafa fengið nokkra leikmenn til sín í vetur en áður höfðu Erlingur Jack Guðmundsson, Halldór Hilmisson, Hjörvar Hermannsson, Hörður Sigurjón Bjarnason og Kjartan Páll Þórarinsson samið við félagið.

Heimild: Heimasíða Þróttar