Fotbolti.net
24.02.12 - 17:15
Hafliði Breiðfjörð

ÍBV lánar Anton Bjarnason í Hauka (Staðfest)

Anton Bjarnason er farinn í Hauka.

Anton Bjarnason er farinn í Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍBV hefur lánað Anton Bjarnason til 1. deildarliðs Hauka og hann hefur þegar fengið félagaskipti með sínu nýja félagi.
Anton er örfættur en hann getur leikið bæði sem kantmaður og bakvörður.

Anton lék í fyrrasumar tvo leiki í Pepsi-deildinni með ÍBV og einn leik í Valitor-bikarnum. Hann var svo lánaður í 3. deildina til KFS.

Alls hefur Anton skorað fjögur mörk í 58 leikjum með ÍBV á ferli sínum.

Hann er þegar kominn með leikheimild með Haukum og má því spila með þeim gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjubikarnum á sunnudagskvöldið.

Ólafur Jóhannesson fyrrverandi landsliðsþjálfari þjálfar lið Hauka og hefur fengið góðan liðsstyrk í vetur. Hann hefur fengið þá Val Fannar Gíslason, Sigurbjörn Hreiðarsson, Magnús Pál Gunnarsson og Guðmund Sævarsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.