24.02.12 - 18:00
Hafliði Breiðfjörð
Matthías Kroknes í Fram (Staðfest)

Matthías Kroknes í leik með BÍ/Bolungarvík gegn Stjörnunni í bikarnum.

Mynd: Ragnar Högni

Matthías Kroknes Jóhannsson er genginn til liðs við Fram frá BÍ/Bolungarvík og er þegar kominn með leikheimild með þeim bláklæddu.
Matthías verður 18 ára gamall á árinu en hefur þegar vakið athygli fyrir knattspyrnuhæfileika sína. Hann hefur æft með Breiðablik í vetur en valdi að lokum að ganga til liðs við Fram.
Matthías Kroknes er kantmaður sem hefur spilað með meistaraflokki BÍ/Bolungarvíkur síðan sumarið 2009.
Síðan þá hefur hann leikið 26 leiki í deild og bikar og skorað í þeim fjögur mörk.
Hann á að baki fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands.
Matthías er annar leikmaðurinn sem Fram fær til sín í vetur, áður hafði Sveinbjörn Jónasson markakóngur 1. deildar komið frá Þrótti.
Þá mun Ásgeir Gunnar Ásgeirsson væntanlega ganga til liðs við Fram frá FH á næstu dögum.
Liðið hefur verið að standa sig vel það sem af er árinu og varð Reykjavíkurmeistari eftir 5-0 sigur á Íslands- og bikarmeisturum KR í úrslitaleik á dögunum.