Fotbolti.net
24.02.12 - 19:55
Brynjar Ingi Erluson

Bolton lánar Sean Davis til Bristol City (Staðfest)

Bolton lánar Sean Davis til Bristol City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers í ensku úrvalsdeildinni hefur lánað miðjumanninn Sean Davis til Bristol City út næsta mánuð.
Davis spilaði sinn síðasta leik fyrir Bolton í ágúst 2009, en síðan þá hefur hann farið í tvær aðgerðir á hné og hefur verið frá vegna meiðsla í 27 mánuði.

Hann hefur nú verið lánaður til Bristol City í ensku fyrstu deildinni til þess að ná formi sínu upp aftur, en hann getur spilað sinn fyrsta leik með liðinu er liðið mætir Blackpool á morgun.

,,Það er langt síðan ég spilaði síðast. Ég var búinn að vera frá í 27 mánuði og hef æft stíft frá því um jólin og spilað með varaliðinu, en ég þarf að spila alvöru leiki,\" sagði Davis.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.