24.02.12 - 20:57
Brynjar Ingi Erluson
Andrei Arshavin lánaður til Zenit (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Andrei Arshavin, leikmaður Arsenal á Englandi hefur verið lánaður til rússneska félagsins Zenit út tímabilið.
Arshavin, sem er 30 ára gamall vængmaður hefur ekki tekist að festa sig í byrjunarliði Arsenal á þessu tímabili og hefur leiktími hans verið af skornum skammti.
Búist var við því að leikmaðurinn myndi fara frá Arsenal í félagaskiptiglugganum í janúar, en ekkert varð úr því. Glugginn í Rússlandi lokar í kvöld, en Zenit tókst að tryggja sér þjónustu leikmannsins út tímabilið, þetta staðfesti leikmaðurinn á samskiptavefnum Twitter í kvöld.
Arshavin þekkir vel til hjá Zenit, en hann lék þar frá árunum 1999 til 2009 áður en hann gekk til liðs við Arsenal í janúar 2009. Hann hefur leikið 132 leiki með Arsenal og skorað 30 mörk í þeim.

Heimild: Sky