24.02.12 - 21:01
Magnús Már Einarsson
Christopher Samba til Anzhi (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Rússneska félagið Anzhi Makhachkala hefur keypt varnarmanninn Christopher Samba frá Blackburn Rovers.
Félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn í Rússlandi lokaði klukkan 20:00 í kvöld. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það hljóði upp á tólf milljónir punda.

Hinn 27 ára gamli Samba óskaði eftir að fara frá Blackburn í janúar og honum hefur nú orðið að ósk sinni.
Guus Hiddink tók á dögunum við þjálfun Anzhi en óhætt er að segja að það sé nóg til hjá félaginu.
Meðal leikmanna Anzhi eru Roberto Carlos, Samuel Eto´o og Yuri Zhirkov og Samba bætist nú í þann hóp.

Heimild: BBC