Fotbolti.net
24.04.09 - 10:32
Hafliði Breiðfjörð

Keflavík samdi við Lasse Jörgensen (Staðfest)

Jörgensen ásamt Kristjáni Guðmundssyni þjálfara í æfingaferðinni í Portúgal.

Jörgensen ásamt Kristjáni Guðmundssyni þjálfara í æfingaferðinni í Portúgal.

Canon

Mynd: Jón Örvar Arason

Keflavík tilkynnti í morgun að félagið hafi samið við danska markvörðinn Lasse Jörgensen sem hefur verið með félaginu í æfingaferð í Portúgal.
Hann mun koma hingað til lands á mánudag og skrifar þá undir samning við Keflavík sem gildir til loka þessa tímabil.

Jörgensen kemur til með að leysa stöðu Ómars Jóhannssonar sem varði mark liðsins á síðustu leiktíð en Ómar mun missa af tímabilinu vegna meiðsla.

Auk hans hefur Keflavík í sínum röðum markvörðinn Magnús Þormar sem hefur reynslu úr efstu deild með liðinu og mun veita Jörgensen samkeppni um byrjunarliðssætið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.