24.04.12 - 15:22
Magnús Már Einarsson
Gavin Morrison og Jordan Edridge í Grindavík (Staðfest)

Guðjón Þórðarson þjálfari Grindvíkinga.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Grindvíkingar hafa fengið liðsstyrk fyrir sumarið en Jordan Edridge og Gavin Morrison munu leika með liðinu í Pepsi-deildinni.
Jordan hefur verið til skoðunar hjá Grindvíkingum undanfarið en Gavin er væntanlegur til landsins á morgun. Gavin leikur með Inverness þar sem Terry Butcher, fyrrum varnarjaxl í enska landsliðinu, er við stjórnvölinn.

,,Gavin er á mála hjá Inverness og hann kemur til mín frá Terry Butcher sem lánaði mér hann. Butcher stendur fyrir sínu,\" sagð Guðjón Þórðarson þjálfari Grindvíkinga við Fótbolta.net í dag.
,,Jordan er miðjumaður og getur líka spilað sem wing-back eða bakvörður. Gavin er meira central miðjumaður, box to box týpa. Þetta breikkar aðeins hópinn hjá okkur.\"
Gavin er 22 ára en hann spilaði fimm leiki með Inverness í skosku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Edridge er uppalinn hjá Chesterfield en hann fór frá félaginu síðastliðið sumar. Í vetur lék hann með New Mills í ensku utandeildinni.