Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fös 24. maí 2024 07:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grindavík og ÍBV sameinast í 2. flokki kvenna
Mynd: ÍBV

ÍBV og Grindavík sameina krafta sína í 2. flokki kvenna í sumar. Sameiginlegt lið ÍBV og Grindavíkur spilaði sinn fyrsta leik á dögunum þar sem liðið fór illa með Hauka og vann 11-4.


„Það er gaman að sjá þessi tvö bæjarfélög og félög starfa saman á þessum vettvangi. Við höfum fulla trú að með þessu sé verið að búa til grundvöll til að stelpurnar á þessum aldri geti verið að keppa á hæsta stigi," segir í tilkynningu frá ÍBV.

Miklar og góðar tengingar eru á milli bæjarfélagana en einnig eiga þau það sameiginlegt að hafa orðið fyrir barðinu á náttúruhamförum.

„Það hafa ávallt verið góðar tengingar á milli Eyja og Grindavíkur enda fólk sem hefur dugnað og eljusemi að leiðarljósi. Þá hefur fólk úr báðum bæjarfélögum orð á sér fyrir að vera höfðingjar heim að sækja og kunna að skemmta sér og öðrum. Atburðir síðustu mánaða hafa síðan enn frekar eflt tengsl íbúanna," segir einnig í tilkynningunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner