Fotbolti.net
24.09.17 - 16:33
Magnús Már Einarsson

Rúnar Páll: Með helvítis hausverk eftir þennan leik

Auglýsing
Rúnar Páll: Með helvítis hausverk eftir þennan leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Maður er með helvítis hausverk eftir þennan leik. Þetta var skrýtinn leikur,\"</i> sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-1 tap gegn Val á heimavelli í dag.

<i>„Mér fannst við vera feykilega fínir í fyrri hálfleik. Valur fær 2-3 sóknir sem þeir skora úr og enn og aftur skora þeir eftir fast leikatriði. Síðan fá þeir vafasama vítaspyrnu á meðan við fáum urmul af færum. Við nýttum það ekki nógu vel. Það var ekki nóg af gæðum á síðasta þriðjung.\"</I>
2-2 jafntefli Fjölnis og KR þýðir að Evrópusæti er í höfn hjá Stjörnunni.

Ef KR hefði unnið þá hefði Stjarnan mætt Vesturbæingum í úrslitaleik um Evrópusæti í lokaumferðinni.

„Það er mikill léttir að þurfa ekki að fara í Vesturbæinn í úrslitaleik. Það færi alveg með taugarnar í mér,\" sagði Rúnar Páll eftir leik í dag.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.