24.11.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Kenneth Gustafsson til liðs í finnsku deildinni (Staðfest)

Gustafsson sem er hér lengst til vinstri fagnar hér bikarmeistaratitli með Keflavík árið 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Gustafsson sem er hér lengst til vinstri fagnar hér bikarmeistaratitli með Keflavík árið 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Miðvörðurinn Kenneth Gustafsson sem tilkynnti í síðustu viku að hann væri hættur hjá Keflavík útaf efnahagsástandinu hér á landi gekk fyrir helgi í raðir finnska félagsins IFK Mariehamn.
Frá þessu var greint á vefsíðu finnska félagsins um helgina en Gustafsson sem er 26 ára gamall gerði þriggja ára samning við finnska félagið eftir að hafa verið í þrjú og hálft ár hjá Keflavík.
Hann hefur verið meðal bestu varnarmanna Landsbankadeildarinnar undanfarin ár. Hann lék alla leiki Keflavíkur í deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Í heildina lék hann 57 leiki í deild og bikar með Keflavík og skoraði fjögur mörk.
IFK Mariehamn er sem fyrr segir finnskt félag sem er staðsett í Mariehamn sem er höfuðborg Álandseyja. Liðið spilar í finnsku úrvalsdeildinni sem ber nafnið Veikkausliiga.
Sjá einnig:
Kenneth Gustafsson hættur með Keflavík.

Heimild: Vefsíða IFK Mariehamn