24.11.08 - 15:43
Magnús Már Einarsson
Brendan Rodgers tekur við Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, varaliðsþjálfari Chelsea, hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Watford.
Þetta er fyrsta starf Rodgers sem knattspyrnustjóri en hann er einungis 35 ára gamall.
Frank Lampard eldri mun einnig koma til Watford og starfa með Rodgers.
Aidy Boothroyd hætti sem stjóri Watford í byrjun mánaðarins og síðan þá hefur Malky Mackay verið tímabundið við stjórnvölinn.
Mackay mun áfram vera í þjálfaraliði Watford og hann mun einnig stýra liðinu gegn Bristol City annað kvöld áður en að Rodgers tekur við stjórnartaumunum.

Heimild: BBC