Fotbolti.net
24.11.08 - 17:37
Magnús Már Einarsson

Heimir og Páll Guðlaugs taka við Fjarðabyggð (Staðfest)

Frá undirritun samninga í dag.

Frá undirritun samninga í dag.

Canon

Mynd: Atli Már Sigmarsson

Fjaraðbyggð hefur ráðið Heimi Þorsteinsson og Pál Guðlaugsson sem þjálfara en þeir skrifuðu undir samninga þess efnis á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
Heimir hefur áður þjálfað hjá KFF á árunum 2004-2005. Einnig stýrði Heimir liðinu í þremur síðustu leikjunum á nýafstöðnu tímabili.

Páll er afar reyndur þjálfari sem m.a hefur stýrt nokkrum landsliðum í Færeyjum. Einnig þjálfaði hann Keflavík og Leiftur í úrvalsdeild hér á landi. Nú síðast þjálfaði Páll nágrannaliðið í Leikni Fáskrúðsfriði í 3.deildinni, en Heimir og Páll muni einnig hafa umsjón með 2.flokki Fjarðabyggðar/Leiknis.

Páll mun gegna starfi knattspyrnustjóra KFF og vera faglegur stjórnandi þjálfunar í meistaraflokkur karla og kvenna hjá KFF auk þess að vera tengiliður við yngriflokka Fjarðabyggðar.

Auk þess samdi Fjarðabyggð við sjö unga og efnilega leikmenn á fréttamannafundinum í dag og þá var skrifað undir áframhaldandi styrktarsamstarf sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og Samvinnufélags Útgerðarmanna við KFF.

Fréttatilkynning frá Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar (KFF)
KFF er eina félagið af úrvals – og fyrstudeildarliðunum sem ekki hefur gengið frá ráðningu þjálfara í mfl.karla. Það hefur margt verið í gangi í starfsemi félagsins undanfarið og ekki verið hægt að uppljóstra neitt fyrr en nú. Ákveðið var að fara hægt í sakirnar í þjálfaramálum að þessu sinni og fara af yfirvegun yfir þau mál enda erfitt tímabil að baki í þeim efnum. Eins er ljóst að staða efnahagsmála hefur gert það að verkum að félagið þarf að endurskoða ýmis mál eins og væntanlega flestir aðrir. Það er því stjórn félagsins fagnaðarefni að kynna hér mikilvæga þætti sem unnið hefur verið að og voru staðfestir í dag.

Auk undirskriftar þjálfaranna var undirritaður samstarfssamningur við umf. Leikni Fáskrúðsfirði og nokkrir ungir leikmenn skrifuðu undir samninga við KFF. Er það liður í þeirri stefnu félagsins að auka enn áhersluna á að byggja liðið upp á uppöldum leikmönnum en KFF hefur sem kunnugt er haft mjög hátt hlutfall af þeim í sínum röðum. Það mun áfram vera stolt okkar að byggja liðið upp á þeirri hugmyndafræði að gefa ungum leikmönnum möguleika á að leika með meistaraflokki í sinni heimabyggð.

Ungu leikmennirnir sem skrifuðu undir í dag heita:
1. Stefán Eysteinsson
2. Sævar Harðarson
3. Haraldur Bergvinson
4. Martin Sindri Rosenthal
5. Óli Freyr Axelsson
6. Andri Magnússon
7. Fannar Árnason

Einn er sá þáttur sem oft gleymist þegar starfsemi íþróttafélaga er rædd og er það starf stjórnar. Hér er um sjálfboðastarf að ræða en þetta er þó sá þáttur í starfinu sem allt byggist á. Undanfarin ár hefur starfsemi KFF verið borin uppi af mjög fámennum hópi en stjórn KFF hyggst breyta því og undirbúið nýtt skipurit sem á að tengja starf aðildarfélaganna og yngriflokka Fjarðabyggðar en betur inn í starfið og verður það vonandi staðfest á aðalfundi félagsins í lok janúar.
Með því mun upplýsingarstreymið ganga bertur á milli íþróttafélaga í annars mjög flóknu samfélagi sem Fjarðabyggð er. Við skorum á íbúa Fjarðabyggðar að fylgjast með okkur á vefsíðu okkar sem er www.kff.is
Hópurinn sem skrifaði undir.

Hópurinn sem skrifaði undir.

Canon

Mynd: Atli Már Sigmarsson

Úr leik hjá Fjarðabyggð

Úr leik hjá Fjarðabyggð

Canon

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.