Fotbolti.net
24.11.08 - 21:11
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir til Linköping (Staðfest)

Margrét Lára Viðarsdóttir er gengin í raðir Linköping.

Margrét Lára Viðarsdóttir er gengin í raðir Linköping.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Margrét Lára Viðarsdóttir er gengin í raðir sænska félagsins Linköping og skrifaði undir eins árs samning við félagið í dag eftir að hafa komist að samkomulagi um að ganga til liðs við það um helgina. Hún staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net nú í kvöld.
Fjöldi liða um allan heim hafði verið á eftir Margréti Láru en eftir að hún hafði skoðað aðstæður hjá Linköping fór hún aldrei leynt með að það yrði hennar fyrsti kostur kæmist hún að samkomulagi við félagið. Það er nú frágengið og ljóst að hún spilar í Svíþjóð á næsta ári.

Margrét Lára Viðarsdóttir er 22 ára gömul og er handhafi titilsins Íþróttamaður ársins síðan um síðustu áramót. Hún hefur leikið með Val undanfarin fjögur tímabil en hóf meistaraflokksferil sinn hjá uppeldisfélagi sínu, ÍBV.

Hún hefur verið markahæsti leikmaður Landsbankadeildarinnar öll árin sem hún hefur verið í Val og síðaata árið í ÍBV, 2004, 2005, 2006, 2007 og 2008 og skorað 127 mörk í 62 deildarleikjum á þeim tíma. Samtals hefur nú skorað 175 mörk í 102 leik í efstu deild.

Linköping endaði í öðru sæti sænsku deildarinnar á nýliðinni leiktíð og spilar því í Evrópukeppni kvenna á næstu leiktíð. Þetta er í annað sinn sem Margrét Lára reynir fyrir sér erlendis því hún hafði verði í nokkra mánuði hjá þýska félaginu Duisburg í lok ársins 2006.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.