Fotbolti.net
24.11.09 - 18:04
Hörður Snævar Jónsson

Paul Hart rekinn frá Portsmouth (Staðfest)

Paul Hart rekinn frá Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paul Hart stjóra Portsmouth hefur verið vikið úr starfi en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Hart var boðið að taka við starfi sem tæknilegur ráðgjafi og að þróa leikmenn frá 18-21 árs aldurs en hafnaði því boði.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Hart undanfarið en lið Portsmouth er á botni ensku úrvalsdeildarinnar.

Liðið tapaði fyrir Stoke á sunnudag og er talið að það hafi verið síðasta kornið sem fyllti mælirinn hjá stjórnarmönnum Portsmouth.

Hann tók við liðinu um mitt síðasta tímabil og tókst á ótrúlegan hátt að bjarga liðinu frá falli.

Liðið er á bottninum með aðeins sjö stig eftir 13 umferðir en liðið hefur þó verið að sýna batamerki undanfarið.

Avram Grant fyrrum stjóri Chelsea sem var fyrir skömmu ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu er talinn líklegastur til að taka við starfinu og hjálpa Hermanni Hreiðarssyni og félögum að reyna að forðast fall.

Heimild: Heimasíða Portsmouth

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.