Fotbolti.net
24.11.09 - 20:42
Magnús Már Einarsson

Nicky Shorey til Nottingham Forest á láni (Staðfest)

Nicky Shorey til Nottingham Forest á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Nottingham Forest hefur fengið vinstri bakvörðinn Nicky Shorey á láni frá Aston Villa.
Þessi 28 ára gamli leikmaður verður hjá Nottingham Forest út desember mánuð.

Shorey kom til Aston Villa frá Reading sumarið 2008 og hóf feril sinn hjá Villa með því að leika gegn FH á Laugardalsvelli.

Honum hefur hins vegar gengið illa að festa sig í sessi hjá Aston Villa og hann hefur einungis leikið einn leik með liðinu síðan í ágúst.

Shorey, sem á tvo landsleiki að baki með Englendingum, mun væntanlega leika sinn fyrsta leik með Nottingham Forest gegn Doncaster á laugardag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.