Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. nóvember 2021 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Prinsinn þeirra Söru Bjarkar og Árna kominn með nafn
Icelandair
Þau Árni og Sara á landsleik í haust.
Þau Árni og Sara á landsleik í haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þau Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson eignuðust sitt fyrsta barn fyrir viku síðan. Sara Björk fæddi dreng og hefur sá fengið nafn.

Ragnar Frank er nafnið en Sara greinir frá því í færslu á Instagram.

„Prinsinn okkar fékk nafnið Ragnar Frank Árnason & er viku gamall í dag 💙," skrifaði Sara við færsluna.

Sara Björk er leikmaður Lyon í Frakklandi og hefur hún sett stefnuna á að komast aftur á völlinn fyrir Evrópumótið næsta sumar en hún ætlar sér að spila þar með íslenska landsliðinu.


Athugasemdir
banner