Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. nóvember 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thiago svaraði sögum um Barcelona
Thiago Alcantara.
Thiago Alcantara.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Thiago Alcantara segist ekki vera að fylgjast með umræðunni þess efnis að hann sé á leið aftur til Barcelona.

Thiago hefur verið orðaður við endurkomu til Börsunga eftir að Xavi, fyrrum liðsfélagi hans, var ráðinn þjálfari liðsins.

Thiago steig fram á sjónarsviðið hjá Barcelona á sínum tíma en þar lék hann yfir 100 leiki fyrir félagið og skoraði ellefu mörk. Hann spilaði með Xavi á árunum 2009-2013 áður en hann fór til Bayern München.

Hann var spurður út í sögurnar í gær og svaraði þá: „Ég spila fótbolta, ég er ekki að fylgjast með sögusögnum. Ég einbeiti mér að liðinu mínu, samningi mínum og ævintýri mínu í Englandi þar sem ég er að reyna að vinna alla titla sem eru í boði."

Thiago kom til Liverpool í september mánuði árið 2020 og hefur hann spilað 37 leiki fyrir liðið og skorað eitt mark. Hann hefur átt í basli með meiðsli frá því hann kom til félagsins og ekki náð að komast á mikið skrið.
Athugasemdir
banner
banner