Fotbolti.net
24.12.04 - 08:21
Hafliði Breiðfjörð

Charisteas gengur til lið við Ajax (Staðfest)

Charisteas gengur til lið við Ajax (Staðfest)
Canon
Angelos Charisteas sem skoraði sigurmark Grikkja á EM 2004 í Portúgal í sumar er genginn til liðs við Ajax í Hollandi frá Werder Bremen. Charesteas sem er 24 ára gamall undirgekkst læknisskoðun hjá hollenska félaginu í gær og skrifaði svo undir samning við félagið sem rennur út 30. júní 2008.
Hann gekk í raðir Bremen frá Aris Thessaloniki sumarið 2002 og átti sinn þátt í því að liðið vann tvöfalt í Þýskalandi í vor. Hann hefur leikið 38 landsleiki fyrir hönd Grikkja en hann var aðeins tvær mínútur að skora í sínum fyrsta landsleik gegn Rússum og á EM í sumar skoraði hann markið sem réði úrslitum er Grikkir unnu mótið.

Á þessari leiktíð hefur hann hinsvegar mikið verið varamaður í liði Bremen en lék í fimm leikja liðsins í Meistaradeild Evrópu. Því verður hann ólöglegur með Ajax í UEFA Cup.

Charisteas sagði: ,,Ajax eru skref upp á við á ferli mínum. Þeir eru topplið í Evrópu og ég vil vinna eins mikið af verðlaunum og mögulegt er með þeim á næstu þremur og hálfu ári. Ég ræddi við Ioannis Anastasiou (annar grískur framherji hjá Ajax) og Petri Pasanen (leikmaður Bremen sem lék áður með Ajax) og þeir sögðu mér að Ajax sé frábært félag að leika með."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.