24.12.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ásta Sigrún og Þórhildur í Hauka (Staðfest)

Haukar unnu 1. deildina í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar unnu 1. deildina í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttu næsta árs í Pepsi deild kvenna því þær Ásta Sigrún Friðriksdóttir og Þórhildur Stefánsdóttir eru komnar til félagsins en þær sömdu báðar til tveggja ára.
Þórhildur Stefánsdóttir er 18 ára gömul en hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með HK/Víkingi.
Hún hefur leikið 21 leik í meistaraflokki og skorað í þeim 12 mörk. Auk þess á hún að baki 5 leiki með U19 ára landsliðinu sem hún hefur skorað tvisvar fyrir og tvo leiki fyrir U17 ára lið Íslands.
Ásta Sigrún Friðriksdóttir er 22 ára gömul og er örvfættur bakvörður. Hún kemur til félagsins frá Fjölni þar sem hún hefur leiið allan sinn feril.
Hún lék 14 leiki með Aftureldingu/Fjölni í deildinni í sumar auk tveggja bikarleikja en á í heildina að baki 54 leiki í deild og bikar og hefur skorað í þeim eitt mark.