Fotbolti.net
25.02.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Eva Hafdís Ásgrímsdóttir lánuð í Aftureldingu (Staðfest)

Eva Hafdís ásamt John Andrews þjálfara eftir undirskriftina.

Eva Hafdís ásamt John Andrews þjálfara eftir undirskriftina.

Canon

Mynd: Aðsend

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur lánað Evu Hafdísi Ásgrímsdóttur til Aftureldingar út tímabilið, en hún er komin með leikheimild með liðinu.
Eva Hafdís, sem er 21 árs gömul á að baki 20 opinbera leiki fyrir Þór/KA en hún hefur leikið með meistaraflokki félagsins frá árinu 2007.

Hún hefur nú verið lánuð í Mosfellsbæinn þar sem hún kemur til með að leika með Aftureldingu í Pepsi-deildinni í sumar.

Hún er komin með leikheimild og getur leikið því með liðinu í fyrsta leik liðsins í Lengjubikarnum gegn KR-ingum þann 15. mars næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.