Fotbolti.net
25.04.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jack Hobbs til Leicester frá Liverpool (Staðfest)

Jack Hobbs til Leicester frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester Citt hefur keypt varnarmanninn Jack Hobbs frá Liverpool en hann hefur verið í láni hjá félaginu í vetur.
Hobbs, sem er tvítugur, hefur gert fjögurra ára samning við Leicester en hann hefur verið fastamaður hjá liðinu í vetur og hjálpað því að komast upp í ensku Championship deildina.

,,Ég hef notið tímabilsins og er gríðarlega ánægður með að hafa gengið frá samningum,\" sagði Hobbs en hann lék tvo leiki með aðalliði Liverpool á síðustu leiktíð.

,,Þetta er stórt félag og ég hef trú á að við getum komist alla leið í úrvalsdeildina. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég gerði fjögurra ára samning.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.