Vill frekar þróa sína leikmenn - „Höfum ekki verið að taka lánsmenn nema í neyð"

Ástbjörn Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Axel Ingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ástbjörn Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ástbjörn Þórðarson hefur verið orðaður við endurkomu í Keflavík. Hann var keyptur til FH frá Keflavík fyrir síðasta tímabil en meiðsli hafa sett strik í hans reikning að undanförnu.
Í fyrra byrjaði hann tuttugu leiki, kom einu sinni inn á, var fjórum sinnum ónotaður varamaður, einu sinni í banni og einu sinni utan hóps. Félagsskiptaglugginn lokar annað kvöld og verður fróðlegt að sjá hvort Ástbjörn verði einn af þeim sem færir sig til. Það verður þó ekki ef marka má orð þjálfara hans í viðtali í gær.

Í viðtali við mbl.is var Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, spurður út í Ástbjörn sem var ekki í leikmannahópi liðsins í gær.
„Ástbjörn er bara búinn að vera töluvert meiddur og þarf að koma sér í gang. Hann er öflugur leikmaður og er með marga hluti sem ég er hrifinn af. Hann þarf bara að halda áfram. Hann er ekki á förum eins og staðan er í dag," sagði Heimir.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, var spurður út í Ástbjörn í dag.
„Nei, við höfum ekki verið að reyna. Við höfum ekki verið að taka lánsmenn nema í neyð. Við höfum viljað þróa okkar leikmenn sem eru á samningi hjá okkur. Ég á ekki von á því að við reynum að fá Ástbjörn. Mér skilst að FH ætli að lána þann leikmann. Okkur finnst frekar að við ættum að þróa leikmann eins og Axel (Inga Jóhannesson) sem hefur verið að spila í bakverðinum og Sindra Þór (Guðmundsson), nýta okkar leikmenn og gera þá betri."
„Ég á ekki von á því að við tökum inn leikmann. Það gæti hugsanlega orðið þannig að 1-2 leikmenn færu á láni. Það er áhugi á því að fá leikmenn frá okkur á láni. Við skoðum það í dag og ákveðum eftir að við heyrum í þeim leikmönnum," sagði Siggi Raggi. Helgi Þór Jónsson er einn af þeim sem hefur verið orðaður í burtu.